Íslensk kjötsúpa
 
Kjötsúpa er hin eina sanna íslenska súpa en það þýðir ekki að allar uppskriftirnar séu eins.
Þessi súpa er hálftær en oft eru höfð grjón í henni og þá verður hún þykkari.

1 kg súpukjöt
1,8 l vatn
1 msk salt, eða eftir smekk
1-2 msk súpujurtir
½ laukur, saxaður smátt
500 g gulrófur
500 g kartöflur
250 g gulrætur
100 g hvítkál (má sleppa)
nýmalaður pipar

Kjötið e.t.v. fituhreinsað að hluta og síðan sett í pott, vatninu hellt yfir og hitað að suðu.
Froða fleytt ofan af, saltað og súpujurtum og lauk hrært saman við. Soðið í um 40 mínútur.
Á meðan eru gulrófurnar afhýddar og skornar í bita, kartöflurnar afhýddar og skornar í
helminga eða fjórðunga, ef þær eru stórar, og gulræturnar skafnar og skornar í bita.
Sett út í og soðið í 15 mínútur til viðbótar. Kálið skorið í mjóar ræmur, sett út í og
soðið í um 5 mínútur, eða þar til allt grænmetið er meyrt. Smakkað og bragðbætt
með salti og pipar, ef þarf. Kjötið er ýmist borið fram í súpunni eða með henni á sérstöku fati.
Ýmislegt annað grænmeti má hafa í súpuna, svo sem grænkál, næpur og jafnvel njóla.
Einnig má sjóða hafragrjón eða hrísgrjón í súpunni. Oft er grænmetið haft í stærri bitum
en hér er gert og soðið lengur en margir fella sig illa við bragðið af gulrófnasoðinu og því
er e.t.v. best að sjóða rófurnar sér í potti og jafnvel kálið einnig.