Humarsúpa

8 humarhalar klofnir í tvennt
1 blómkálshaus meðalstór
3 stk. perlulaukur fínt saxaður
1 gulrót fínsöxuð
1 stöngull sellerí fínt saxaður
4 hvítlauksgeirar fínt saxaðir
1 ½ dl þurrt vermút
2 l fiskisoð
2 msk söxuð steinselja
salt og pipar
matarolía

Hitið olíuna í potti og kraumið perlulauk, sellerí og hvítlauk í henni. Þegar grænmetið er orðið mjúkt er humarhölunum (hafið þá í skelinni) bætt saman við. Bætið fiskisoðinu og víninu út í pottinn og látið sjóða niður um fjórðung. Skerið blómkálið í litla bita og setjið helminginn af því í súpuna og látið sjóða í 5-10 mín. Takið humarhalana upp úr súpunni og hreinsið skelina af þeim. Setjið súpuna í blandara og hakkið grænmetið í fínt mauk. Hellið súpunni aftur í pottinn, hitið hana og kryddið með salti og pipar. Saxið humarkjötið fínt og bætið því í súpuna ásamt afganginum af blómkálinu og söxuðu steinseljunni.