Hafmeyjusúpa fyrir 4-6
1 rauðlaukur
4 msk ólífuolía
1-2 tsk karrý
1 hvítvínsglas
800 ml vatn
1,5 fiskiteningur
1 dós niðursoðnir tómatar
0.5 dós tómatpúrra
1 dós ferskjur (lítil dós og safinn með)
Grein af skessujurt
Vöndur af timjani eða annað laufkrydd
250 gr lax (skorinn í bita)
1-2 bréf bláar ósoðnar rækjur
Sjávarsalt og ferskur pipar.
Laukur og karrý er kraumað í olíu. Víninu bætt út í. Soðið
niður þar til vínlyktin hverfur. Vatni bætt við, teningi og tómötum. Látið sjóða
í 10 mínútur. Fiskunum, ferskjunum og safanum bætt út í og hitað að suðu. Maldon
salti og fersk malaður pipar eftir smekk.
Má bera fram með sýrðum rjóma og fersku brauði.