Gulrótarsúpa Gullu
60 g smjör
750 g gulrætur
1 laukur
1 hvítlauksrif
10 cm engifer
3 sellerístilkar
Salt og pipar
1 l af grænmetissoði
1 msk. hunang
1 lárviðarlauf
125 ml rjómi eða ein dós af sýrðum rjóma.
Ferskt kóríander eða steinselja til skrauts Smjörið er brætt og smátt skorinn
laukur, hvítlaukur, engifer, sellerí og gulrætur sett út í smjörið og hitað vel
í 20 mínútur eða nógu lengi til að gulræturnar verði mjúkar. Þá er soði bætt út
í, hunangi, lárviðarlaufi, salti og pipar og súpan soðin í 10 mínútur eða svo.
Þá er lárviðarlaufið fjarlægt og súpan maukuð. Ef vill má á þessum tímapunkti
þynna hana aðeins með vatni og bæta svo rjóma út í og hita hana að suðu, bera
svo fram með smátt skornu kóríander eða steinselju til skrauts ofan á. Það má
einnig sleppa rjómanum en bera hana þess í stað fram með vænni slettu af sýrðum
rjóma auk kryddjurta.
