Gulrótasúpa. (Handa fjórum)

Hráefni:

1 meðalstór laukur

350 g gulrætur

8 dl vatn

1 grænmetisteningur

1–1½ lárviðarlauf

½ tsk. salt

¼ tsk. pipar

½ dl kaffirjómi

2 msk. sérrí eða koníak (másleppa)

2 tsk. fersk steinselja til skrauts

Aðferð:

Flysjið laukinn og gulræturnar, skerið í bita og setjið í pott. Hellið vatninu yfir ásamt grænmetisteningnum og lárviðarlaufinu og sjóðið í 15–20 mínútur. Takið lárviðarlaufið upp úr og maukið gulræturnar og laukinn með töfrasprota eða setjið í matvinnsluvél. Saltið og piprið og bætið ef til vill meira vatni út í til að fá súpuna mátulega þykka. Bætið rjómanum og sérríinu/ koníakinu út í um leið og súpan er borin fram. Skreytið með svolítilli steinselju. Ef rjómanum er sleppt er þessi súpa hitaeiningasnauð en saðsöm og því tilvalin fyrir þá sem vilja grennast. Svolítill rjómi og sérrí gerir súpuna hins vegar svo góða að hún sómir sér á hvaða veisluborði sem er.