Gulrótar- og appelsínusúpa með döðlum (fyrir 4)

1 msk grænmetisolía
1 stk laukur, fínt saxaður
6-8 stórar gulrætur, skornar í sneiðar
2 tsk karrý
1 msk kúmen, heilt
150 gr steinlausar döðlur
350 ml appelsínusafi
650 ml grænmetissoð eða kjúklingasoð
söxuð mynta eða kóríander
svartur pipar og salt

Hitið olíu í stórum potti og setjið laukinn í og svitið í 5 mínútur eða þar til  hann er orðinn gylltur.
Bætið gulrótum og karrý út í, kúmeni, pipar og salti og svitið í smá stund.
Bætið þá appelsínusafa og döðlum saman við og sjóðið þangað til gulræturnar eru ornar mjúkar, ca 10 mínútur eða lengur.
Fjarlægið pottinn af hellunni og maukið súpuna með töfrasprota í pottinum eða setjið hana í matvinnsluvél og maukið hana saman.
Setjið súpuna aftur yfir til suðu og hrærið vel í 4-5 mínútur, smakkið hana til og berið hana fram með saxaðri myntu eða kóríander.