Gúllassúpa Inga Rafns

Uppskriftin nægir fyrir fjóra og rúmlega það.
300 g nautahakk
400 g nautagúllas
300 g kartöflur
4 hvítlauksrif
200 g gulrætur
1 dós niðursoðnir tómatar (stappaðir)
100 g sveppir
2 stk. rauðlaukur
1 stk. chili-pipar (ferskur)
salt og pipar eftir smekk.

Aðferð
Veltið gúllasinu upp úr hveiti og brúnið á pönnu. Setjið í meðalstóran pott. Brúnið hakkið á pönnunni og bætið í pottinn. Brúnið laukinn og sveppina og bætið í. Sjóðið kartöflurnar í frekar litlu vatni og maukið síðan (með hýðinu). Bætið í pottinn ásamt öllu hinu. Kartöflurnar eru notaðar til að þykkja súpuna aðeins. Sjóðið allt í ca. 45 mínútur. Borin fram með grófu brauði (helst nýbökuðu). Eldið frekar ríflega af súpunni, því hún er æðisleg upphituð daginn eftir.