Graskerasúpa 2
2 msk ólívuolía
2 laukar
2 hvítlauksrif
1 kg aldinkjöt úr graskeri
1/2 tsk kanill
1/2 tsk múskat
2 grænmetisteningar
500 ml vatn
150 ml rjómi
salt
nýmalaður pipar
Skerið laukinn og hvítlaukinn og brúnið í potti. Fjarlægið aldinkjöt úr
meðalstóru graskeri, vigtið og skerið í bita. Bætið aldinkjötinu á pönnuna og
steikið í tíu mínútur. Bætið kanil og múskati í og steikið í fimm mínútur í
viðbót. Bætið vatni og grænmetisteningum út í og látið sjóða í 20-30 mínútur.
Takið súpuna af hitanum og hrærið í mauk með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
Færið súpuna aftur yfir í pottinn, bætið rjómanum við og hitið upp að suðu.
Smakkið til með salti og pipar.