Graskerssúpa
Fyrir 6

2 msk. grænmetisolía
1 laukur, saxaður
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
700 g af skrældu graskeri, skorið í
ca. 3 cm bita
200 ml grænmetissoð eða vatn
400 ml kókosmjólk (1 dós)
2 tsk. safi úr lime
sjávarsalt og nýmulinn svartur pipar eftir smekk

Brúnið lauk, hvítlauk og cumminfræ í olíunni við meðalháan hita í nokkrar mínútur eða þar til laukurinn er orðinn gullbrúnn. Bætið út í graskeri, vatni og kókosmjólk. Sjóðið við vægan hita í um það bil 30 mínútur eða þar til grænmetið er meyrt. Maukið með töfrasprota eða í matvinnsluvél þar til allar örður eru farnar. Bætið út í limesafa og kryddið til. Setjið í rjómasprautu og sprautið í vínglas.