1 blaðlaukur (hvíti og ljósgræni
hlutinn) eða 1 laukur
1 msk olía
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
2-3 paprikur, mismunandi litar, fræhreinsaðar og skornar í bita
1/2 eggaldin, skorið í teninga
lófafylli af linsubaunum (gjarna grænum)
2 msk súpujurtir
1/2 tsk herbes de provence, eða aðrar þurrkaðar kryddjurtir eftir smekk
1/4 tsk kummin
safi úr 1/2 sítrónu
1,2 l vatn
1-2 msk tómatþykkni (paste)
1 rautt chilialdin, heilt (má sleppa)
nýmalaður pipar
salt
Blaðlaukurinn saxaður smátt. Olían hituð í potti og blaðlaukurinn látinn
krauma í henni í nokkrar mínútur án þess að brúnast. Þá er hvítlaukur,
paprikur og eggaldin sett út í og steikt í nokkrar mínútur í viðbót; hrært
öðru hverju. Linsubaunir, súpujurtir og krydd sett út í og hrært vel.
Sítrónusafinn kreistur yfir grænmetið. Vatni hellt yfir (best að það sé
sjóðandi), tómatþykkninu hrært saman við, chilialdinið sett út í, kryddað
með pipar og salti, og látið malla í 25-30 mínútur, eða þar til grænmetið er
vel meyrt og baunirnar einnig. Súpan smökkuð til með pipar, salti og e.t.v.
meiri sítrónusafa.