Gómsæt gúllassúpa

GÚLLASSÚPA F. 8

2 msk ólífuolía
2 bollar saxaður laukur
2 msk saxaður hvítlaukur
3 rauðar paprikur, saxaðar
3 msk tómatpúrra
½ kíló nautakjöt, skorið í munnbita
¼ tsk kúmenfræ
1 tsk paprikukrydd
6 bollar nautakraftur
1 msk sítrónusafi
1 bolli kartöflur, skrældar, í teningum
Sjávarsalt
Pipar

Hitið olíu og steikið lauk þar til hann er glær. Bætið hvítlauki, papriku og tómatpúrru út í, eldið í 10 mínútur. Bætið kjöti, kúmeni, paprikukryddi, krafti og sítrónusafa við. Látið malla í klukkutíma og kortér. Bætið kartöflum út í og látið sjóða þar til bæði kjöt og kartöflur eru meyrar.  Smakkið til með sjávarsalti og pipar.