Gæsamauksúpa með villisveppum


2 msk. olía
4 gæsalæri
salt og nýmalaður pipar
20 g þurrkaðir villisveppir,
lagðir í volgt vatn í 20 mín.
100 g kjörsveppir, skornir í sneiðar
1 l villibráðar- eða kjúklingasoð eða vatn og 1 msk.
kjúklingakraftur
½ dl brandí
1 dl púrtvín
sósujafnari
1 dl rjómi
4-6 msk. léttþeyttur rjómi


Kryddið lærin með salti og pipar og kraumið í olíu í potti í þrjár til fjórar mínútur eða þar til lærin verða fallega brún. Bætið þá kjörsveppunum í pottinn og kraumið í tvær mínútur. Kreistið þá vatnið af villisveppunum og setjið í pottinn ásamt tveimur desílítrum af sveppavatninu, villibráðarsoðinu, brandí og púrtvíni. Sjóðið við vægan hita í eina og hálfa klukkustund. Takið þá lærin upp úr pottinum og skerið kjötið af beinunum. Skerið kjötið í litla bita og setjið aftur í súpuna. Látið sjóða í tíu mínútur í viðbót. Maukið þá súpuna með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Þá er rjómanum bætt í súpuna og smakkað til með salti og pipar. Berið fram með léttþeyttum rjóma.

Þessi er eftir Úlfar Finnbjörnsson