Gæsagúllassúpa
Gómsæt villigæsasúpa að hætti Úlfars Finnbjörnssonar
fyrir 6


4 gæsalæri
salt og nýmalaður pipar
4 msk. olía
2 ½ dl hvítvín eða mysa
1 laukur, smátt saxaður
2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
1 paprika, skorin í litla bita
1 gulrót, skorin í litla bita
1 sellerístilkur, skorinn i litla bita
2 tsk. paprikuduft
½ tsk. kúmín
1 ½ msk. hveiti
1 lárviðarlauf
9 dl villibráðar- eða kjúklingasoð,
eða vatn og kjúklingakraftur
400 g niðursoðnir tómtar í bitum
15 g þurrkaðir villisveppir,
lagðir í vatn í 20 mín.
100 g kjörsveppir, skornir í bita
¼ tsk. cayenne pipar
6 msk. sýrður rjómi eða grísk jógúrt

Kryddið lærin með salti og pipar og steikið í 2 msk. af olíu á vel heitri pönnu þar til lærin verða gullinbrún. Takið þá lærin af pönnunni og setjið
í pott. Bætið hvítvíni á pönnuna og sjóðið niður um helming. Hellið þá víninu í pottinn. Kraumið laukinn, hvítlaukinn, papriku, gulrætur, sellerí og sveppi í afganginum af olíunni í þrjár til fjórar mínútur. Þá er paprikudufti og kúmíni bætt á pönnuna og kraumað í tvær mínútur í viðbót. Hveitinu er þá stráð yfir grænmetið og kraumað í tvær mínútur. Hærið stöðugt í með sleif á meðan. Hellið þá grænmetinu í pottinn, ásamt soðinu, niðursoðnu tómötunum og cayenne-piparnum og sjóðið við vægan hita í 60 til 80 mínútur, eða þar til kjötið af lærunum er orðið mjúkt. Takið þá lærið upp úr súpunni og skerið kjötið í teninga. Setjið þá teningana aftur í pottinn og sjóðið í fimm til tíu mínútur og smakkið til með
salti og pipar. Setjið súpuna í skálar og bætið einni matskeið af grískri jógúrt í hvern disk og skreytið með til dæmis kóríander- eða óreganólaufum.