Fiskisúpa kokksins (Fyrir 6-10)

Tekur 30 mínútur að undirbúa. Líka góð daginn eftir.

150 g lúða

150 g ýsa

150 g rækjur

150 g hörpudiskur (má sleppa)

Mikilvægt að setja rækjurnar í eftir að slökkt er á pottinum eða hafa aðeins 1-2 mínútur á gashellu.

3 hvítlauksrif

3-4 gulrætur sneiddar

1 stk. laukur

1 rauð paprika sneidd

1 græn paprika sneidd

1 dós tómatpuré

1 dós niðursoðnir tómatar

2½ dl vatn

1 teningur fiskikraftur

½ teningur hænsnakraftur

1 tsk. tandoori masala

¼ tsk. karrí

¼ tsk. hvítur pipar

6 sólþurrkaðir tómatar sneiddir

4 msk. mango chutney

1 dl sæt chilisósa

500 ml matreiðslurjómi

Byrja á að hita eina matskeið af olíu í pottinum og brúna þrjú hvítlauksrif sem búið er að merja með hnífsblaði og skera niður. Tekið af hitanum og sett í skál. Brúna síðan í sama potti gulræturnar, laukinn og paprikurnar í tveimur matskeiðum af olíu. Þá er bætt í tómatpuré, niðursoðnu tómötunum, vatni, fiskikrafti, hænsnakrafti, tandoori masala, karríi og hvítum pipar. Nú strax á eftir eru sólþurrkuðu tómatarnir sneiddir niður og mango chutney, sætu chilisósunni og matreiðslurjómanum bætt við. Möluðum svörtum pipar bætt við eftir smekk og látið sjóða niður í um það bil fimmtán mínútur. Þá er slökkt undir pottinum. Þegar borðhaldið fer að nálgast er vermt undir pottinum og fiskurinn (allur nema skelfiskurinn) settur út í og beðið eftir suðunni. Gott að nota lúðu, ýsu eða búra. Skelfiskur eins og rækjur, hörpudiskur eða humar er settur út í þegar potturinn er tekinn af hellunni. Látið standa í fimm mínútur. Borið fram með nýju brauði. Til gamans er hægt að bera súpuna fram í brauðkollum sem er hægt að kaupa tilbúnar. Smátt skorinni steinselju er sáldrað yfir.