Fiskisúpa Auðar:
1 1/2 l vatn
Fiskikraftur
Ólífuolía
Fjögur hvítlauksrif
Tveir laukar
Tvær tsk turmerik
Þrjár tsk rautt karrí
Lárviðarlauf
Fjórar gulrætur
Tvær paprikur
400 gr. tómatar í dós
Hvítvín
250 ml rjómi
1 kg lúða
500 gr. Rækjur
Eldunaraðferð:
Fyrst er kryddið hitað í ólívuolíunni og svo er laukurinn og grænmetið
léttsteikt upp úr því. Þegar þetta er búið að malla í smástund þá er soðinu og
tómötunum bætt út í og því leyft að malla eins lengi og tími gefst til. Ef maður
hefur sérlega góðan tíma er best að búa sitt eigið soð til. Undir lokin er
rjómanum, hvítvíninu, fiskinum og rækjunum bætt út í. Gott er að hafa skelfisk
með í súpunni.