Fiskisúpa
1 gulrót
1 blaðlaukur
1 steinseljurót
2 stiklar sellerí
1 hvítlauksrif, pressað
1 msk sjör
1 1/2 l fiskisoð (vatn og teningur)
1/2 tsk salt
1/2 tsk pipar
600 g þorskflak
2 dl kaffirjómi
50 g rækjur
50 g surimi (gervikrabbakjöt, fæst í frystiborðum)
20 g dill
Aðferð:
Skerið allt grænmeti smátt niður og léttsteikið það í smjöri,ásamt
hvítlauk. Bætið fiskisoðinu saman við. Þegar súpan er orðin vel heit er rjómanum
bætt saman við og síðan þorskurinn sem hefur verið roðfléttur, hreinsaður og
skorinn í bita. Bragðbætið með salti og pipar. í lokin er rækjunum og surimi
bætt saman við og súpan skreytt með dillinu. Hægt er að nota hvaða fiskitegund
sem er eftir smekk hvers og eins og eftir tilefninu.