Búlgörsk lambakjötssúpa a la Hrönn

1 kg lambaframpartur
2 laukar
1 hvítlauksrif
2 msk smjör
1/2 msk paprikuduft
1 dós niðursoðnir tómatar eða 1/2 kg ferskir
1 1/2 lítri kjötsoð
1 lárviðalauf
1/2 tsk marjoram
3 dl linsur
2 paprikur
salt og pipar

1. Kjötið skorið af beinunum í smábita og búið til soð af beinunum

2. Laukur og hvítlaukur saxaðir og látnir krauma í smjörinu án þess að brúnast. Takið laukinn af pönnunni.

3. Kjötið brúnað. Paprikuduftinu stráð yfir. Laukurinn settur út í aftur ásamt tómatsósu eða tómötunum skornum í bita.

4. Þynnt út með síuðu soðinu, lárviðarlaufi og marjorami bætt í og soðið í lokuðum potti við vægan hita í 30 mínútur.

5. Linsurnar skolaðar í köldu vatni, látið síga vel af þeim og bætt í súpuna. Soðið áfram í 20 mín.

6. Paprikan skorin í strimla. Soðin í súpunni í 5 mínútur. Súpan er bragðbætt og borin fram með grófu brauði.