Brauðsúpa royale
250 gr rúgbrauð eða brauðafgangar
(tilvalið að nota spelt rúgbrauð, seytt rúgbrauð, spelt brauð eða brauð með
spelti)
1 l vatn
1 tsk. maldonsalt
safi úr ½ sítrónu
safi úr ½
appelsínu
½ kanillstöng
1-2 dl maltöl
50-100 g rúsínur
100 g þurrkaðir ávextir, epli,
sveskjur og apríkósur, döðlur
100 g ristaðar kókosflögur
Leggið brauðið í bleyti í vatn í nokkra klukkutíma. Sjóðið brauð í vatni, síið í
gegnum sigti og hitið það aftur.
Setjið þá sítrónusneiðar með. Bætið rúsínum og þurrkuðum ávöxtum út í og
bragðbætið súpu svo með maltiöl, sítrónusafa
og appelsínusafa. Hver og einn verður að búa yfir leyndarmáli til þess að gera
súpuna ljúffengari að sögn
Petrínu Rósar, en hennar leyndarmál felst í því að bæta sultu eða marmelaði út í
hana. Eða eins og í þessu tilviki
hindberjasultu með svörtu súkkulaði.
