Sveppasósa

100 gr sveppir
1 dós af kókosmjólk
2 tsk karrí
1/2 - 1 tsk salt
svolítill pipar
2 gerlausir grænmetisteningar, t.d. frá Hügli (fást í Yggdrasil)
1-2 msk maísmjöl hrært út i 1 dl af vatni

Skerið sveppina í sneiðar og setjið þá í pott. Bætið kókosmjólk , kryddi og grænmetiskrafti út í og látið sjóða í u.þ.b. 30 mínútur við vægan hita. Þykkið með maísmjöli. Einnig má þykkja sósuna með maukuðum soðnum kartöflum eða linsubaunum.