Góð dressing fullkomnar salatið

Ferskt salat bragðast alltaf vel með öllum mat en enn betra ef með salatinu er ljúffeng salatsósa. Það þarf ekki að vera flókið að gera slíka dressingu, góð olía ein og sér er til dæmis góð á salatið. Hér að neðan er einföld en góð salatsós sem hentar með alls kyns salötum hvenær sem er

1 msk sítrónusafi
1 msk hvítvínsedik
1 tsk Dijon-sinnep
1/2 tsk hunang
3 msk ólífuolía
3 msk maísolía
sjávarsalt
svartur pipar

Finnið gegnsæja krukku með loki. Blandið saman sítrónusafanum, ediki, sinnepi, hunangi og kryddum í krukkunni. Hellið olíunni ofan í, setjið lokið á og hristið krukkuna þar til allt er vel blandað saman.