| |
Chimichurri
1 vænt knippi af steinselju
1/2 knippi af mintu
5-6 hvítlauksgeirar, saxaðir
1 lítið, þurrkað chillialdin, eða 1/2 tsk chiliflögur
nýmalaður pipar
salt
3 msk edik, og meira eftir smekk
200 ml jómfrúarolía
Leggirnir skornir (svona að miklu leyti) af
steinseljunni og mintunni og
blöðin sett í matvinnsluvél eða blandara ásamt hvítlauk, chili, pipar og
salti. Vélin látin ganga þar til allt er smátt saxað. Þá er edikinu þeytt
saman við og síðan olíunni smátt og smátt. Smakkað til með salti og ediki
eftir smekk. |