Béchamel sósa

3 bollar mjólk
1 lárviðarlauf
3 múskatblöð
½ bolli smjör
¾ bolli hveiti
Salt og nýmalaður svartur pipar

 

Hitið mjólkina varlega með lárviðarlaufinu og múskatinu í litlum potti. Bræðið
smjörið í meðalstórum potti. Bætið hveitinu við og blandið vel með písk.
Hitið í 2-3 mínútur. Látið mjólkina renna í mjórri bunu í smjör- og hveitiblönduna og pískið vel á meðan. Látið blönduna sjóða en passið að hræra vel á meðan, leyfið að sjóða í 4-5 mínútur. Kryddið með salti og pipar eftir
smekk.