Trönuberjasósa með fuglakjöti

Trönuberjasósa er ein af einföldustu sósum sem hægt er að gera og passar sérstaklega vel með flestu kjöti og ekki er verra að hafa jafnvel eina tegund af rjómasósu með. Þessi uppskrift er sérstaklega þægileg:

1 bolli sykur
1 bolli vatn
4 bollar fersk eða frosin trönuber

Við þennan grunn getur svo fólk bætt út í því sem það langar til. Má þar leggja til rúsínur, pekanhnetur, bláber, kanil og múskat.
Byrjið á því að þvo berin. Hitið þarnæst vatnið og sykur inn að suðu og hrærið vel í á meðan. Setjið berin út í og látið þau malla í tíu mínútur. Þegar þessu er lokið má bæta við því aukahráefni sem mann lystir. Látið sósuna kólna við stofuhita og þegar hún hefur náð stofuhita skal hún færð í ísskápinn. Sósan þykknar því meira sem hún kólnar.