Tómatgrillsósa
0,5 l tómatsafi
200 ml appelsínusafi
4-5 msk grillsósa (aftur Hunts Original Barbecue Sauce, til dæmis)
2 msk eplaedik eða vínedik
1 tsk sojasósa
3-4 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
væn skvetta af tabascosósu eða annarri chilisósu
nýmalaður pipar
salt
sykur eftir smekk
Allt nema sykurinn sett í pott, hrært og hitað
að suðu. Látið malla við
fremur hægan hita í 15-20 mínútur eða lengur; sósan á að sjóða dálítið
niður, þannig að hún þykkni ögn. Ef ykkur finnst hún samt of þunn má bæta út
í hana svolitlum sósujafnara eða maísmjöli hrærðu út í köldu vatni. Sósan er
svo smökkuð til með sykri, pipar, salti og chilisósu.
Sósan hefur reyndar gott af að bíða dálitla stund og það er tilvalið að
byrja að sjóða hana um leið og rifin fara í ofninn, slökkva undir pottinum
þegar hún er tilbúin og hita hana svo upp aftur.