Súrsætsósa

½ msk púðursykur
3 dl vatn eða soð
1 msk edik
15 gr tómatkraftur
½ dós ananas og helmingurinn af safanum
örlítið af blaðlauk (eftir smekk)
½ msk maisinamjöli og 1 tsk vatn til að jafna sósuna

Púðursykur, vatn eða soð, edik, tómatkraftur, ananas, safi og blaðlaukur sett í pott og látið malla vel saman. Þykkt með maisinamjöli og kryddað. Gott er að krydda sósuna með grænmetiskryddi (pikanta), grænum pipar, soyasósu, sítrónusafa, salti og pipar allt eftir smekk.