Súrsæt rjómasósa
2 msk ólífuolía
1 geiri hvítlaukur
1 tsk engifer (saxaður)
4 dl tómatsósa
4 dl vatn
2 msk borðedik
3 msk sykur
1 tsk soyasósa
1 msk kartöflumjöl
1 dl rjómi
Saxið hvítlauk og engifer smátt, hitið olíu á pönnu. Hitið hvítlaukinn og engiferið í olíunni. Hrærið saman tómatsósu, vatni, sykri, ediki og kartöflumjöli, hellið þessu á pönnuna og látið suðuna koma upp. Bætið þá rjómanum saman við og berið fram