Sósa með humri og grilluðum fiski
Þetta er hin fræga franska sósa „beurre blanc“, hún er einstaklega góð með
öllum fiski.
Handa 4–6
3 skalotlaukar, fínsaxaðir
3 msk. hvítvín
2 msk. hvítvínsedik
5 msk. matreiðslurjómi, Gott í matinn frá MS
170 g smjör
ögn af salti
Setjið lauk, hvítvín og edik á pönnu og látið sjóða niður um helming
við vægan hita. Takið pönnuna af hitanum og þeytið rjómann og
smjörið saman við þar til smjörið er fullbráðið. Setjið pönnuna aftur
á vægan hita og þeytið áfram í 2–3 mínútur. Smjörið má ekki hitna
of mikið, þá getur sósan skilið sig. Ef hún gerir það þarf að láta hana
kólna örlítið og þeyta aftur upp. Berið strax fram.