Mintu-skyrsósa
1 lítil dós hreint KEA-skyr
1 hvítlauksgeiri, saxaður
3-4 msk fersk mintulauf, söxuð
1 msk ólífuolía
1/2 tsk hunang
nýmalaður pipar
salt
Allt sett í matvinnsluvél eða blandara og þeytt
vel saman (einnig má pressa
hvítlaukinn og saxa mintuna smátt og hræra allt saman með skeið). Látið bíða
í kæli nokkra stund og síðan borið fram.