Köld hnetusósa

4 stk hvítlauksrif
2 msk sítrónusafi
2 msk tamari sósa
1½ dl hnetusmjör úr heilsubúð
1½ dl nýpressaður appelsínusafi
1 msk rifin engiferrót

Fersk og ljúffeng sósa. Best með Hnetusteik, en prófið hana með hverju sem er.

Setjið allt saman í matvinnsluvél og vinnið þar til sósan verður fekar mjúk.

Hollráð
Viljið þið hafa sósuna þynnri má bæta meiri vökva út í.
Gott er að hræra smá sýrðum rjóma saman við sósuna, eða ab-mjólk sem búið er að láta leka