Karamellusósa

250 gr sykur
1 1 ½ - 2 dl heitt vatn
¼ l rjómi

Panna hituð og þurrkuð. Sykurinn látinn á og brúnaður. Gætið þess að hræra sem minnst í honum, fyrr en hann er bráðinn, hristið heldur pönnuna. Þegar þétt hvít froða er komin ofan á sykurinn, er heitu vatninu hellt á pönnuna og hrært í, þar til sykurinn og vatnið hafa jafnast saman. Hellt í skál, hrært í annað slagið á meðan sósan kólnar. Þegar hún er köld er þeyttum rjómanum blandað í og hún borin fram.