Kaperssósa

1 l soð eins og viðkomandi rétti tilheyrir
50 gr kapers, ásamt safa
smjörbolla
salt og pipar
sykur ef vill

Sigtið soðið og bragðbætið með salti og pipar, jafnið með smjörbollu. Bætið kapersinu saman við. Gott er að bæta sósuna með eggjarauðu og rjóma en eftir að eggjarauðu hefur verið jafnað í sósuna má hún ekki sjóða