Jarðsveppasósa

10 gr. jarðsveppir
20 gr. skalottulaukur
500 ml. Portvínssoð
5 ml. Balsamicedik
100 gr. Kalt íslenskt smjör

Jarðsveppir skornir í strimla og skalottulaukur fínt saxaður. Sveppir og laukur svitað í smjöri. Balsamic ediki bætt útí, Portvínssoði hellt yfir og látið sjóða þar til þykknar, smakkað til með salti og pipar. Kalt smjör skorið í teninga og handþeytt útí rétt áður en borið er fram.