Guacamole (án tómat og hvítlauks)
4 avakadó (mjúk)
1/2 laukur (smátt saxaður)
1-2 rauð chili (grænt gerir sama gagn)
1/2 dl ferskt kóríander (smátt saxað, blöð og stönglar)
2-3 msk lime safi
salt og pipar eftir smekk
Avakatóið þarf að vera rétt þroskað. Ef það gefur aðeins eftir er það tilbúið. Flysjið og takið steininn úr. Stappið með gaffli og bætið öllu hinu út í. Best er að útbúa þetta rétt áður en það á að borðast. Ef þarf að geyma það hafið þá ílátið loftþétt og sem minnst af lofti inn í því.