Ekta amerísk BBQ-sósa
Það sem þarf í sósuna:
1 laukur
2 rauður chili-pipar, tvö stk.
2 msk. olía
2 msk. sojasósa
2 dósir niðursoðnir tómatar
¾ dl eplacider-edik
1 msk. Dijon-sinnep
½ msk. Worcestershire-sósa
2 msk. púðursykur
1 ½ msk. paprikuduft
1 tsk. cayenne-pipar
1 tsk. salt
2 tsk nýmalaður pipar
Aðferð:
Afhýðið laukinn og saxið smátt,fræhreinsið chili-pipar og saxið hann einnig
smátt. Steikið á pönnu
í olíu þar til laukurinn mýkist. Bætið restinni af því sem er upptalið hér fyrir
framan og sjóðið
upp. Lækkið hitann og látið malla í eina og hálfa klst. Hrærið í af og til.
Kælið sósuna aðeins og setjið hana í matvinnsluvél eða notið töfrasprota til að
mauka hana.
Kælið sósuna alveg niður áður en hún er sett í krukku eða í annað geymsluílát.
Ef sósan reynist of
þykk má þynna hana með smávegis vatni þegar hún verður notuð. Geymist í góðu
íláti í eina viku í ísskáp