Bláberjasósa

200 g bláber gjarnan aðalbláber
2 msk lómónubörkur, rifinn
5 dl vatn
1 Púrtvín
2 msk nautakjötskraftur (hljómar svoldið mikið)
1 msk púðursykur
1/2 tsk allrahanda krydd
1/3 tsk salt
1/2 tsk piparblanda
50 g smör, kalt skorið í bita.

Setjið ber, límónubörk, vatn, kraft og púðursykur í pott og látið
sjóða niður í u.þ.b. 20 mín eða þar til magnið hefur minkað um u.þ.b.
þriðjung. Setjið púrtvínið út í og kryddið með allrahanda, piparblöndu og salti.
Setjið smjör út í og hrærið á meðan það bráðnar.
Ef til vill má þykkja sósuna með maizena jafnara en það þarf ekki.
Þessi sósa er frábær með villibráð og líka með öllu steiktu kjöti.