Béarnaise-sósa

Grunnuppskrift
1 eggjarauða
100 gr smjör
1 tsk heitt vatn
kjötkraftur
worchestersósa
extragon/fáfnisgras
bérnaisessens

Smjörið brætt við lágan hita (70°C). Eggjarauðurnar stífþeyttar með vatninu í vatnsbaði, bræddu smjörinu hellt í mjórri bunu út í eggjarauðurnar þeytt á meðan. Í lokin er sósan krydduð og henni haldið heitri í vatnsbaði.
Það er hægt að þeyta eggjarauðurnar í hrærivél en þá þarf að passa að hrærivélarskálin sé vel heit og ekki hrært of lengi eftir að smjörið er komið saman við því þá skilur sósan sig.