Waldorfsalat
1 dós sýrður rjómi (18%)
100 ml rjómi, þeyttur
3 msk majónes (má sleppa)
1 tsk hunang (eða sykur eftir smekk)
hvítur pipar
salt
½ Kínakálshaus, lítill
2 epli
150 g blá og/eða græn vínber, helst steinlaus
75 g valhnetukjarnar
e.t.v. nokkur blöð af grand-salati
steinselja til skreytingar (má sleppa)
Sýrður rjómi, þeyttur rjómi, majones og hunang sett í skál, hrært
vel saman og kryddað með pipar og salti. Steinselja skorin í mjóar ræmur. Eplin
afhýdd, kjarnhreinsuð og skorin í litla bita. Vínberin skorin í tvennt og
hneturnar grófmuldar (nokkrir valhnetukjarnar og nokkur vínber tekin frá til að
skreyta með) Kínakáli, eplum, valhnetum og vínberjum blandað saman við sýrða
rjómann. Sett í fallega skál,sem e.t.v. er búið að klæða innan með blöðum af
grand-salati, og skreytt með vínberjum, hnetukjörnum og steinselju.