Veislusalat

½ haus icebersalat
2 stilkar sellerí
300 gr græn vínber
2 græn epli
50 gr valhnetukjarnar
200 gr majonese
200 gr sýrður rjómi
salt sítrónusafi eftir smekk

Hrærið saman majones og sýrðan rjóma, kryddið með salti og sítrónusafa. Rífið icebergsalatið frekar smátt, skerið vínberin í tvennt, saxið eplið, skerið selleríið frekar smátt og saxið valhnetukjarnana. Blandið öllu saman og kælið.