Svartbaunasalat

1 dós svartar nýrnabaunir
1 lítill rauðlaukur, skorinn í bita
1 græn paprika, fræhreinsuð
1/2 rautt chilialdin (stórt, milt)
2 tómatar, vel þroskaðir
1/2 steinseljuknippi
1/4 tsk kummin, steytt
nýmalaður pipar
salt
1/2 sítróna
100 ml ólífuolía
2-3 msk kóríanderlauf, saxað (má sleppa)

Baununum hellt í sigti, þær skolaðar í köldu, rennandi vatni og látið renna
vel af þeim. Laukurinn, paprikan og chilialdinið saxað mjög smátt (best að
setja þetta allt í matvinnsluvél og láta hana ganga þar til allt er smátt
saxað en ekki orðið að mauki). Hellt í skál. Tómatarnir fræhreinsaðir og
saxaðir smátt og steinseljan söxuð. Sett í skálina ásamt baunum, kummini,
pipar og salti. Safinn kreistur úr sítrónunni yfir salatið, olíunni hellt
yfir og blandað vel. Salatið er geymt í kæli þar til það er borið fram.
Kóríanderlaufinu dreift yfir um leið og það er sett á borðið.