Salat með hörpudiski

350 gr hörpudiskur
4-5 mat ólifolía
1 hvítlauksrif
rifin engiferrót
1 pk klettasalatblanda
1 mangó afhýtt og skorið í bita
250 gr kirsuberjatómatar
1 krukka grænar ólifur
1 krukka sólþurrkaðir tómatar
furuhnetur eftir smekk, léttristaðar á pönnu.

Hörpudiskur lagður í olíuna í nokkra klukkutíma með söxuðum hvítlauk og örlitlu af engiferrót. Hitið pönnuna mjög vel, takið fiskinn úr olíunni og steikið við háan hita í örstutta stund. Salat sett í skál ásamt öðru niðurskornu hráefni. Síðast er fiski og hnetum blandað saman við og balsamsalatsósu hellt yfir.

Balsamsalatsósa

2 dl olía af sólþurrkuðum tómötum
1 1/2 matsk balsamedik
1 tsk sojaolía
þessu blandað mjög vel saman.

Þegar þetta er borðað sem forréttur er það borðað kalt með brauði.