KJÚKLINGASALAT
FYRIR FJÓRA TIL SEX
150 gr frisé-salatblanda
100 gr spínat
1 gul paprika skorin í strimla
½ rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
250 g kokkteiltómatar, skornir í tvennt
¼ ferskur ananas, brytjaður niður
1 lárpera (avocado) skorin niður
100 g/1 dós valhnetur
3 msk. hrásykur
1 msk. olía
4 kjúklingabringur, skornar í strimla
3-4 msk. hoisin-sósa
sesamfræ
Aðferð:
Bræðið sykur í olíu á pönnu. Setjið hnetur út í og ristið við vægan hita. Látið
kólna í smástund á pönnu. Steikið kjúklingabringur, hellið hoisin-sósu yfir og
stráið sesamfræjum loks yfir.
Setjið salat í stóra skál. Skerið niður papriku, rauðlauk, tómata, ananas og
lárperu og blandið saman við salatið. Stráið ristuðum valhnetunum yfir og setjið
kjúkling ofan á. Bætið út í olíu, fetaosti,
balsamik ediki eða balsamiksírópi eftir smekk. Stráið loks smá pipar yfir
salatið.
