Draumasalat með austurlenskri sósu

1/2 dl þurrt sérrí eða púrtvín
1/2 dl sojasósa
4 tsk engiferrót (fersk og rifin)
3 hvítlauksrif
400 gr svínalundir eða kjúklingabringa
1/2 dl hosin-sósa
2 msk púðusykur
2 msk hvítvínsedik (má nota balsami edik)
1 msk olifuolia
1 tsk sesamolía (þessi sósa gerir útslagið í sósunni)
4 rauðlaukar
1 msk sesamfræ ristuð
2 pokar salatblanda
5 plómur eða ferskjur (ég nota plómur, þær eru ómissandi í salatið)
Hægt er að nota hvaða annað grænmeti sem til er í ísskápnum eftir
efnum og aðstæðum t.d. tómata, avacadó og papriku.

Blandið sérríi, sojasósu, engifer og hvítlauk saman. Takið 1/2 dl til
hliðar og geymið. Látið kjötið marinerast í leginum í að minnsta kosti
1 klukkustund í kæli. Grillið síðan í 10 - 12 mín. Blandið marineringunni
sem geymd var saman við hosin-sósuna, púðursykur, edik og olíu og hitið
að suðu. Bætið að lokum sesamolíu í sósuna, Skerið grillað kjötið í strimla
og blandið saman við salatblönduna.