Margrét Þóra Þorláksdóttir og Andrea Guðmundsdóttir, matráðar í Listaháskóla
Íslands, eiga heiðurinn af þessari uppskrift að salati með svínalundum sem
gleður sennilega þá er finnst lítill matur í salatskammti. Uppskrift að þessu
salati hefur m.a. birst í bókaklúbbnum „Af bestu lyst“.
Sumarlegt salat með svínalundum
(aðalréttur fyrir fjóra)
½ dl þurrt sérrí
½ dl sojasósa
4 tsk. engiferrót (fersk og rifin)
3 hvítlauksrif (marin)
400 g svínalundir
½ dl Hoi-sin-sósa
2 msk. púðursykur
2 msk. hvítvínsedik
1 msk. ólífuolía
1 tsk. sesamolía
2 rauðlaukar
1 msk sesamfræ (ristuð)
2 pokar salatblanda
4 ferskjur
Blandið saman sérríi, sojasósu, engifer og hvítlauk. Takið frá ½ dl af leginum
og geymið þar til síðar. Setjið lundina í plastpoka og hellið afganginum af
leginum þar í. Lokið pokanum og látið löginn blandast kjötinu vel. Látið bíða í
kæli í a.m.k. eina klukkustund. Þerrið marineringuna af kjötinu og grillið í
10-12 mínútur á opnu grilli. Blandið nú saman marineringunni, sem var lögð til
hliðar í upphafi, Hoi-sin-sósu, púðursykri, ediki og olíu og hitið að suðu.
Bætið sesamolíu saman við. Takið af hitanum. Skerið kjötið í strimla og blandið
saman við salatblönduna í stóra skál eða á fat. Skerið lauk í þunnar sneiðar og
dreifið yfir ásamt sesamfræjum. Dreypið sósu yfir. Skerið ferskjur í þunna báta
og stráið yfir að síðustu. Berið afgang af sósunni fram með salatinu.
