Salat med kóngarækjum og appelsínum

Fyrir 4

Blandað salat

20 kóngarækjur

2 appelsínur

1/2 rauðlaukur

50 g af furuhnetum

1 safi úr einni sítrónu

3 matskeiðar olífuolía

graslaukur

salt og pipar

Lagið viniagrette úr sítrónusafanum og ólífuolíunni. Kryddið með salti og pipar. Afhýðið appelsínurnar með hníf og skerið kjötið frá skinninu. Ristið furuhneturnar á þurri pönnu þar til þær taka lit. Þvoið og þurrkið og rífið niður salatblöðin. Setjið kóngarækjurnar, appelsínurnar, furuhneturnar og þunnt skorinn laukinn út í salatið.

Blandið vel með viniagrettinu. Skerið graslauk yfir og berið fram. Hægt er að nota allskonar skelfisk og jafnvel reyktan lax í þetta salat.

Það kemur skemmtilegt samspil á milli fisksins og appelsínunnar. Með þessu er gott að bera fram einfalt, ferskt og þurrt hvítvín. T.d. svalandi Sauvignon Blanc frá Loire dalnum eða Suður-Frakklandi