Salat með kavíar, eggjum og ólífum
Hráefni:
nokkur salatblöð
2 harðsoðin egg
2 msk. kavíar
svartar ólífur eða grænar
2 msk. capers
Sósa ofan á salat (hráefni):
1 msk. sinnep
2 msk. sítrónusafi
1 msk. hunang
salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
Skolið salatblöðin og setjið í salatskál. Sjóðið eggin og kælið. Skerið þau í
báta og setjið saman við salatið ásamt kavíar og svörtum ólífum. Hrærið saman
sinnepi, sítrónusafa og hunangi og saltið og piprið eftir smekk. Hellið sósunni
yfir salatið og berið það fram.