Rótargrænmetissalat
meðlæti fyrir 4-6
200 g gulrætur
200 g gulrófur
200 g rauðrófur
1 dl appelsínusafi
1/2 dl rúsínur
1/4 msk kanill
1 msk hunang
1 sm engifer, saxað
1/2 tsk chili
1 stk hvítlauksgeiri, saxaður eða rifinn
1 tsk lime, safi
Ræturnar af rófunum eru rifnar og appelsínusafinn hitaður ásamt rúsínunum og
öllu kryddinu upp að suðu og maukað í blandara eða með töfrasprota.
Blandið því næst öllu saman og stráið saxaðri steinselju yfir og salti eftir
smekk.