Rösty-kartöflur
6 stk. rifnar bökunarkartöflur
matarolía til steikingar
salt og pipar
Fylling:
2 bakaðar kartöflur
steinselja
½ dl rjómi
sítrónusafi
salt og pipar
Rifnar kartöflurnar eru mótaðar í mátulegar
lummur og steiktar gullinbrúnar á pönnu, þrýst ofan á þær á meðan þær steikjast,
kryddið kartöflurnar með salti og pipar. Setið kartöflurnar á ofnplötu og bakið
áfram í 120°C heitum ofni í ca 30 mín.
Gott er að setja fyllingu ofan á kartöflurnar.
Maukið kartöflurnar og blandið steinselju, rjóma, sítrónusafa, salti og pipar
saman við í mixara. Sprautið fyllingunni ofan á steiktar kartöflurnar áður en
þær fara inn í ofninn.