Rauðrófusalat

Rauðrófur eru hollar og má nota þær í salat. Hér kemur einföld uppskrift að slíku.
Innihald
100 g af hráum rauðrófum
250 g af gulrótum
búnt af vorlauk, fínt sneiddum
50 g kasjúhnetur eða salthnetur
150 g af hreinni jógúrt
Ein teskeið af hunangi og chillí og engiferduft.
Skerið rauðrófurnar og gulræturnar niður í grófa bita. Bætið öðru innihaldi saman við og blandið vel saman í skál.