Peru- og appelsínusalat með hvítlauksgrasi og
fíflablöðum
Tekið úr Fréttablaðinu 30 mai 2009
Hvítlauksgras hefur blaðamaður ræktað síðan í vor. Til að byrja með stakk
undirrituð hvítlauk sem hún keypti úti í búð og lét hann spíra í
eldhúsglugganum. Þegar fagurgrænt grasið var farið að láta sjá sig var lauknum
stungið niður í blómapott með mold í og grasið láta snúa upp á við. Síðan þá
hefur grasið vaxið vel og hægt er að klippa af því grasið, ekki þó alveg niður,
og nota í salöt, fisk og kjúklingarétti og ýmislegt. Grasið þykir mörgum jafnvel
bragðbetra en hvítlaukurinn sjálfur. Hér er uppskrift að ávaxtasalati þar sem
grasið er notað ásamt fíflablöðum:
4 perur
2 appelsínur
hvítlauksgras eftir smekk
nokkur fíflablöð
jómfrúarolía
sjávarsalt
balsamiksíróp ef vill Sneiðið perur niður örþunnt. Afhýðið appelsínurnar og
skerið aldinkjötið í litla bita. Klippið hvítlauksgrasið í litla búta sem og
fíflablöðin. Hellið jómfrúarolíu yfir og stráið smá sjávarsalti að lokum yfir
allt saman. Fyrir sælkera er gott að setja nokkra dropa af balsamiksírópi yfir.