Paprikusalat með kóríanderfræi

1 rauð, 1 gul, 1 appelsínugul og 1 græn paprika
salt
2 msk ólífuolía
safi úr 1/2 sítrónu
2 tsk kóríanderfræ, steytt
1/2 tsk sykur, eða eftir smekk
nýmalaður pipar

Paprikurnar helmingaðar, fræhreinsaðar og skornar í mjóar ræmur. Saltvatn
hitað að suðu í potti, paprikurnar settar út í og látnar sjóða í 1 mínútu
eftir að suðan kemur aftur upp. Hellt í sigti og látið renna vel af þeim en
síðan hvolft í skál og olíu, sítrónusafa, kóríander, sykri og pipar hrært
saman við. Borið fram strax.